Icelandair hefur ráðið Guðmund Tómas Sigurðsson sem nýjan flugrekstrarstjóra félagsins.
Guðmundur tekur við starfinu af Þ. Hauki Reynissyni sem hefur sinnt því frá árinu 2018. Haukur mun starfa áfram hjá félaginu sem flugstjóri.
Guðmundur Tómas hefur stýrt þjálfunardeild Icelandair frá árinu 2021 eftir að hafa starfað til margra ára sem kennari og þjálfunarflugstjóri hjá félaginu. Hann hóf upphaflega störf sem flugmaður hjá Icelandair 2005, starfaði svo hjá flugfélaginu Cargolux á árunum 2010 til 2014 áður en hann sneri aftur til starfa hjá Icelandair. Á árunum 2015 til 2021 starfaði hann sem sérfræðingur í afkastagetu flugflota Icelandair þar sem hann vann náið með Boeing og IATA.
„Guðmundur Tómas hefur fjölbreytta reynslu innan Icelandair og þekkir starfsemina mjög vel. Reynsla hans og þekking munu án efa nýtast vel í þessu yfirgripsmikla starfi. Guðmundur tekur við góðu búi frá Hauki Reynissyni sem sinnt hefur starfinu um sex ára skeið. Um leið og ég þakka Hauki fyrir frábær störf undanfarin ár þá hlakka ég til að vinna með þeim báðum í nýjum hlutverkum og að þeim spennandi verkefnum sem fram undan eru,” segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair, í tilkynningu.
Guðmundur Tómas, bætir við: „Ég er mjög spenntur fyrir nýju hlutverki innan þessa frábæra félags og stoltur af því að vera falin sú mikla ábyrgð sem í því felst. Það eru mjög spennandi tímar í fluggeiranum og til framtíðar sjáum við mörg fjölbreytt og áhugaverð verkefni sem tengjast meðal annars flotaendurnýjun, tækniframförum og sjálfbærni.“