Jón Gunnarsson alþingismaður segir vikuritið Heimildina hafa tekið þátt í blekkingarleik með erlendri tálbeitu fyrir son sinn til að afla upplýsinga um sig varðandi hvalveiðar á Íslandi. Án þess að greina frá því hvað sonur hans hafi sagt segir Jón í yfirlýsingu, sem hann hefur birt á Facebook, að það hafi ekki allt verið rétt.
Jón er nú í leyfi á Alþingi og gegnir störfum í matvælaráðuneytinu sem fulltrúi ráðherra. Hann gagnrýnir Heimildina harðlega í yfirlýsingunni og þykir það bera vott um siðleysi að leggja snörur fyrir fjölskyldu sína til að koma höggi á sig. Hann sé ýmsu vanur og stjórnmálamenn þurfi að þola eitt og annað, en árásir á fjölskyldur þeirra séu handan þess.
Jón segir son sinn hafa leitað til lögmanns og hyggist leggja fram kæru vegna málsins, enda hafi verið brotið gróflega gegn friðhelgi einkalífs hans með ólögmætum upptökum, eins og segir í yfirlýsingunni.
Að sögn Jóns hafði erlendur maður, sem kynnti sig sem svissneskan fjárfesti, samband við son sinn, sem er fasteignasali. Kvaðst hann hafa áhuga á fjárfestingu í íslenskum fasteignum og boðaði komu sína til landsins. Eftir að hafa kynnt sér ýmsar mögulegar fjárfestingar hér hafi þeir átt kvöldverð og skrafað margt, en áhugi gestsins einkum beinst að Jóni, sér í lagi hvað varðaði hvalveiðar.
Þetta samtal segir Jón að hafi verið tekið upp með ólöglegum hætti, en síðastliðinn föstudag hafi blaðamennirnir Aðalsteinn Kjartanssson og Helgi Seljan (sem hætti störfum á Heimildinni í liðnum mánuði) haft samband við þá feðga til þess að spyrjast nánar fyrir um það sem á góma bar í kvöldsamtali sonarins við tálbeituna. Fleiri spurningar hafi borist skriflega um helgina.
Ekki kemur nákvæmlega fram í yfirlýsingunni hvað sonur hans hafi sagt í samtali hans við útlendinginn, nema hvað blaðamennirnir hafa eftir syninum að Jón hafi tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið til þess að gefa út hvalveiðileyfi. Það segir Jón fjarri öllum sanni, enda hafi ráðherra einn vald til þess.
Eins hafi sonurinn verið spurður út í ferð Jóns á ársfund Alþjóðahvalveiðiráðsins í Perú nú í september og hver hafi staðið straum af ferðakostnaðinum. Jón segir að þó skýrt hafi komið fram af sinni hálfu að það hafi hann sjálfur gert, virðist sonur hans hafa gefið annað í skyn við tálbeituna.
Jón tekur fram að þessi aðgerð hafi hafist þegar í september, áður en upp úr ríkisstjórnarsamstarfinu slitnaði, áður en að matvælaráðherra Vinstri grænna sagði embætti sínu lausu og löngu áður en hann hafi komið í ráðuneytið.
Hann harmar að sonur sinn hafi orðið leiksoppur svikahrapps og til einskis eytt mörgum vikum í að elta gylliboð hans og gera honum til geðs. Slíkar blekkingar eigi enginn að þola „frá íslenskum fjölmiðlum eða erlendum hagsmunaaðilum og þrýstihópum“.
Yfirlýsing Jóns fer í heild hér á eftir:
Ég og fjölskylda mín erum sleginn yfir því hversu langt svokölluð rannsóknarblaðamennska gengur og ég vona að fólk sjái hvað þetta er orðið fjarri lagi og siðlaust. Undanfarnar vikur virðist hafa verið settur á svið vel skipulagður blekkingarleikur sem leikinn er í margar vikur. Erlendur maður villir á sér heimildir til þess eins að blekkja son minn í þeim tilgangi að koma höggi á mig. Sagan er eftirfarandi.
Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur fjárfestir“ frá „Meitri Group“ samband við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjárfesta í fasteignum hér á landi. Sonur minn, sem er fasteignasali, átti í framhaldinu fjarfund með manninum, sem kom svo hingað til lands. „Fjárfestirinn“ sótti son minn á bifreið með einkabílstjóra og skoðuðu þeir nokkur verkefni víða um höfuðborgina og fóru út að borða í lok dags.
Í síðustu viku kom hins vegar í ljós að maðurinn hafði villt á sér heimildir, dregið son minn á asnaeyrunum vikum saman án þess að ætla nokkurn tímann að eiga nein viðskipti. Þvert á móti virðist markmiðið hafa verið að hlera son minn og ná af honum leyndum og ólögmætum upptökum að tala um mig og hvalveiðar. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, blaðamenn á Heimildinni og fyrrverandi samstarfsmenn tveggja frambjóðenda Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar, hringdu samtímis í mig og son minn síðasta föstudag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöldspjalli sonar míns og „fjárfestisins“. Sérstök heimasíða var búin til fyrir fjárfestingarsjóðinn í þessum blekkingarleik en síðunni var lokað í framhaldi af símtölum blaðamannanna.
Þessar njósnir um son minn hófust um miðjan september, áður en ríkisstjórninni var slitið og ráðherrar VG sögðu sig frá ráðuneytum sínum. Um helgina fékk ég tölvupóst frá Aðalsteini á Heimildinni þar sem hann lagði fyrir mig sjö spurningar, sem ljóst er að byggja á efni úr samtali sonar míns við „fjárfestinn“.
Þar sé m.a. haft eftir syni mínum að ég hafi tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið til þess að gefa út leyfi til hvalveiða. Um þetta hefur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálfsögðu enga stoð í raunveruleikanum. Þar þarf ekki að nefna annað en að lögum samkvæmt hafa aðstoðarmenn engar heimildir til að taka stjórnsýsluákvarðanir eða gefa út leyfi af nokkru tagi.
Það var mat Bjarna Benediktssonar að málaflokkar matvælaráðuneytisins, sem er eitt atvinnuvegaráðuneytanna, þyrftu á meiri athygli að halda en hann gæti veitt sem ráðherra nokkurra ráðuneyta í starfsstjórn. Forveri hans í ráðuneytinu var þar með tvo aðstoðarmenn. Málaflokkar ráðuneytisins eru fjölmargir og umsókn um leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga aðeins eitt fjölmargra sem koma þar inn. Sonur minn var einnig spurður um ferðalag mitt á alþjóðahvalveiðiráðstefnuna og hver hafi greitt fyrir ferðina. Ég hef greint frá því áður að ég stóð straum af kostnaði við ferðalagið sjálfur en af spurningum blaðamannanna að dæma virðist sonur minn hafa að einhverju leiti gefið annað í skyn umrætt kvöld.
Ég hef verið lengi í stjórnmálum og fæ reglulega á mig gagnrýni sem þingmaður og fyrir mínar stjórnmálaskoðanir. Það er hluti af því að starfa á þessum vettvangi. Að ráðast beint gegn fjölskyldunni minni með þessum hætti er hins vegar af öðrum toga. Fjölskyldur þingmanna eiga ekki undir neinum kringumstæðum að þurfa að sæta árásum eins og þessum frá íslenskum fjölmiðlum eða erlendum hagsmunaaðilum og þrýstihópum. Sonur minn er venjulegur fjölskyldufaðir í rekstri, sem eyddi mörgum vikum í að eltast við gylliboð svikahrapps sem engin innistæða var fyrir. Í þeim samskiptum lagði hann mikið á sig til að heilla hinn meinta fjárfesti og tryggja viðskiptin, en fór rangt með í einhverjum málum sem þar voru til umræðu.
Sonur minn hefur leitað til lögmanns og mun hyggst hann leggja fram kæru vegna málsins enda hefur verið gróflega brotið gegn friðhelgi einkalífs hans með ólögmætum upptökum sem honum varð ekki kunnugt um fyrr en Helgi Seljan upplýsti hann um það.
Eftir stendur hins vegar að um allan heim eru vinnubrögð eins og þessi talin óviðeigandi og ólíðandi. Ég læt ekki árásir eins og þessar hafa áhrif á mína afstöðu gagnvart sjálfbærri nýtingu auðlinda. Afstaða mín til hvalveiða byggir á sjálfbærni veiða við Íslandsstrendur, menningu okkar og sögu. Ég mun áfram halda áfram að berjast fyrir íslenskum hagsmunum og sjálfbærri nýtingu auðlinda okkar þrátt fyrir þessar ógeðfelldu tilraunir til að fæla mig frá mínu starfi.