Bjarni og Trump ræddu stuðning við Úkraínu

Bjarni og Trump ræddu margt, þar helst varnarmál og stríðið …
Bjarni og Trump ræddu margt, þar helst varnarmál og stríðið í Úkraínu. Trump kvaðst sérstaklega áhugasamur um íslenska menningu. Samsett mynd

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist hafa átt gott símtal við Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseta, í gær. Trump kvaðst þar sérstaklega áhugasamur um Ísland, bæði sem ferðamannastað og um sögu og menningu landsins.

Frá þessu greinir forsætisráðherrann í færslu á Facebook en forsætisráðuneytið segir einnig frá símtalinu í tilkynningu. Þjóðarleiðtogarnir ræddu samskipti ríkjanna, viðskipti og öryggis- og varnarsamstarf

„[É]g lagði áherslu á vináttu ríkjanna og viðskipti, en Bandaríkin eru okkar stærsta einstaka viðskiptaland fyrir íslenskar útflutningsvörur,“ skrifar Bjarni en hann hitti Trump síðast á leiðtogafundi NATO árið 2017.

Trump og Bjarni standa í flokki þjóðarleiðtoga á NATO-fundi árið …
Trump og Bjarni standa í flokki þjóðarleiðtoga á NATO-fundi árið 2017. AFP

Ræddu stuðning við Úkraínu

Þá hafi Bjarni sérstaklega nefnt mikilvægi þess að halda í samband ríkjanna og dýpka viðskipti þeirra enn frekar.

„Ræddum einnig Atlantshafsbandalagið, mikilvægi þess fyrir öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og loftrýmisgæsluna. Sömuleiðis mikilvægi áframhaldandi öflugs stuðnings við varnir Úkraínu og leiðina til langvarandi friðar,“ bætir Bjarni við.

Inn­rás­in í Úkraínu er nú á sínu þriðja ári og sig­ur Trumps hef­ur stefnt framtíð stríðsins í ákveðna óvissu þar sem hann hef­ur ít­rekað gagn­rýnt stuðning Banda­ríkja­manna við Úkraínu.

Hann biður að heilsa

„Ég nefndi við hann vel heppnaða alþjóðlega fundi hér á landi, bæði undanfarin ár á viðburðum eins og leiðtogafundi Evrópuráðsins, en sömuleiðis lengra aftur - viðburði á borð við fundinn í Höfða 1986,“ skrifar Bjarni enn fremur en tekur fram að þeir Trump hefðu sammælst um að Ísland væri góður vettvangur slíkra funda.

Bjarni skrifar að lokum:

„Trump var sérstaklega áhugasamur um Ísland, bæði sem ferðamannastað og um sögu og menningu okkar. Hann bað fyrir góðum kveðjum til íslensku þjóðarinnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert