Fær borgað fyrir fundi sem hún situr ekki

Sanna Magdalena Mörtudóttir fær greiddar 263.474 kr. fyrir setu í borgarráði. Hún hefur aðeins setið eina klukkustund af síðustu sjö fundum.

Sanna var spurð út í þetta í leiðtogakappræðum sem haldnar voru í Hádegismóum í gær. Þar varð henni tíðrætt um þá gjá sem myndast hefur milli „kerfisins“ og alþýðu manna sem hún vill brúa.

Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðir Sósíalistaflokk Íslands í kosningunum að þessu …
Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðir Sósíalistaflokk Íslands í kosningunum að þessu sinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Greitt en ekki mætt

Varð það tilefni til þess að spyrja hana út í mætingu hennar í borgarráð og greiðslur sem hún hefur ekki beðist undan þótt engin sé fundasóknin.

Benti Sanna Magdalena á að vinna þeirra sem sitja í borgarráði fari fram að miklu leyti utan formlegra funda ráðsins. Hins vegar hefur hún verið á fullu í kosningabaráttu síðustu sex vikurnar eins og alþjóð hefur orðið vitni að.

Kappræður leiðtoga flokkanna voru haldnar í Hádegismóum í gær. Þar …
Kappræður leiðtoga flokkanna voru haldnar í Hádegismóum í gær. Þar tókust meðal annars á þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Virkir þingmenn eða ekki

Út frá þessu spannst einnig umræða um virkni þingmanna í störfum Alþingis. Urðu Sigmundur Davíð og Þorgerður Katrín til svars um það efni og spannst talsverð rimma þar um.

Leiðrétt: Í upphaflegri frétt var sagt að Sanna Magdalena hefði ekki alltaf kallað inn varamann. Það er rangt. Í eitt sinn mætti fyrsti varamaður hennar ekki, Andrea Helgadóttir og tók þá varamaður hennar, Ásta Þórdís Skjalddal sæti. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

Leiðtogakappræðurnar má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Þeim var skipt í tvennt og mættu fimm leiðtogar í hvorn hluta þeirra.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka