Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum á Norðausturlandi. Gul veðurviðvörun er í gildi vegnar hríðar á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Ströndum og norðurlandi vestra.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Ísland segir að norðaustan- og norðanátt verður ríkjandi í dag, víða allhvass eða hvass vindur.
Búast má við snjókomu og skafrenningi á austurhelmingi landsins með erfiðum akstursskilyrðum og líkur á að færð spillist.
Spáð er él norðvestantil á landinu, en þurrt suðvestanlands. Frost verður á bilinu 0 til 7 stig.
Á umferdin.is segir að snjóþekja eða hálka sé á flestum leiðum á Norðurlandi og Norðausturlandi.
Óvissustig er í gildi á Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði. Reynt verður að halda úti hefðbundnum mokstri þrátt fyrir óvissustigið.
Varðandi færð á Austurlandi segir að snjóþekja sé á Fjarðarheiði en þæfingur á Fagradal, á Hólmahálsi, á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs og milli Hafnar og Þvottár.
Þungfært er í Norðfirði, í Heiðarenda og í Jökulsárhlíð. Þá er ófært er milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur sem og milli Djúpavogs og Þvottár en mokstur stendur yfir.
Á Suðausturlandi er víðast hvar þæfingur eða snjóþekja á vegum en mokstur stendur yfir. Ófært er á Mýrdalssandi.
Þá er snjóþekja, hálka eða hálkublettir undir Eyjafjöllum og einhver éljagangur.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir eru á nokkrum leiðum. Mjög hvasst er undir Hafnarfjalli og snjóþekja er norður í Árneshrepp.