Andlát: Jón Nordal

Jón Nordal.
Jón Nordal.

Jón Nordal, tónskáld og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, 5. desember, á 99. aldursári. Jón var meðal ástsælustu tónskálda þjóðarinnar og einn helsti forystumaður í uppbyggingu tónlistarlífs á Íslandi síðastliðna öld.

Jón Nordal fæddist á æskuheimili sínu á Baldursgötu 33 í Reykjavík 6. mars 1926. Foreldrar hans voru Ólöf Nordal og Sigurður Nordal prófessor. Eldri systkini hans voru Bera, f. 1923, d. 1927, og Jóhannes, síðar seðlabankastjóri, f. 1924, d. 2023.

Jón lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1948 og tónsmíðum 1949. Hann stundaði framhaldsnám í píanóleik og tónsmíðum í Zürich í Sviss 1949-1951, auk námsdvalar í París, Róm og Darmstadt 1956-1957. Jón var skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík í 43 ár, eða frá árinu 1959 til 1992, auk þess að kenna píanóleik og tónfræði. Tónlistarskólinn var um árabil æðsta menntastofnun landsins í tónlist og brautskráði flesta hérlenda atvinnutónlistarmenn. Jafnframt lagði skólinn grunn að almennri tónlistarkennslu um land allt með menntun hljóðfærakennara og tónmenntakennara. Sem píanóleikari hélt Jón tónleika hér á landi og erlendis, bæði sem einleikari og í samleik.

Jón sat í ýmsum nefndum varðandi tónlistarmál og var í stjórn STEFs 1968-1987. Hann var í stjórn Tónskáldasjóðs Ríkisútvarpsins í 47 ár til ársins 2017. Þá var hann einn stofnenda Musica Nova, félagsskapar um flutning nútímatónlistar á Íslandi, og fyrsti formaður hans 1959.

Jón Nordal var afkastamikið tónskáld og mikill hvatamaður að nýsköpun í tónlist. Eftir hann liggja stór hljómsveitarverk og einleikskonsertar, margs konar kammertónlist og einleiksverk, orgelverk, kórlög og stærri kórverk, leikhústónlist, sönglög og fleira. Jón er höfundur laga sem eiga sérstakan sess hjá þjóðinni og má þar nefna sönglagið „Hvert örstutt spor“ við ljóð Halldórs Laxness og kórlagið „Smávinir fagrir“ við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, sem Jón samdi einungis 14 ára gamall.

Jóni hlotnaðist margs konar heiður og má þar nefna stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu og riddarakross dannebrogsorðunnar.

Jón var í heiðurslaunaflokki Alþingis frá 1983 og hlaut heiðursnafnbót Íslensku tónlistarverðlaunanna 2010, auk fleiri viðurkenninga. Þá var Jón félagi í konunglegu sænsku tónlistarakademíunni frá 1968.

Eiginkona Jóns var Solveig Jónsdóttir menntaskólakennari, f. 1932, d. 2012. Foreldrar hennar voru Þórunn Björnsdóttir og Jón Helgason, prófessor í Kaupmannahöfn. Börn Jóns og Solveigar eru Hjálmur, Ólöf og Sigurður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert