Þrír fluttir með þyrlunni á sjúkrahús

Hinir slösuðu voru fluttir með þyrlu til Reykjavíkur.
Hinir slösuðu voru fluttir með þyrlu til Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrr í dag vegna alvarlegs umferðarslyss tveggja bifreiða sem varð austan Seljalandsfoss á Suðurlandsvegi. Hinir slösuðu voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík.

Þetta segir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.

Aðspurður getur Einar ekki sagt til um ástand hinna slösuðu að svo stöddu.

Fyrr í dag var greint frá því að þyrla Landhelgisgæslunnar hefði verið kölluð út vegna umferðarslyss. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert