Birta ljósmynd af alelda bíl

Ljósmyndin af bílnum.
Ljósmyndin af bílnum. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur birt á Facebook-síðu sinni ljósmynd af bílnum sem varð alelda við mótorkrossbrautina í Mosfellsbæ í gærkvöldi.

Myndin var tekin af vegfaranda. 

„Engin hætta stafaði af eldinum og var ein stöð send á staðinn,“ segir í færslu slökkviliðsins.

Bíllinn var orðinn alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert