Úkraína, Sýrland og Bandaríkin efst á baugi

Fjarfundur norrænu utanríkisráðherranna fór fram í dag.
Fjarfundur norrænu utanríkisráðherranna fór fram í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Fjarfundur norrænu utanríkisráðherranna fór fram í dag þar sem efst á baugi voru málefni Úkraínu, þróun mála í Sýrlandi og samskipti við Bandaríkin.

Þetta segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands.

„Ráðherrarnir voru einhuga um mikilvægi þess að halda áfram dyggum stuðningi við Úkraínu sem nú hefur varist ólöglegu og blóðugu innrásarstríði Rússlands í meira en 1000 daga. Norðurlöndin hafa veitt Úkraínu stuðning á þessum tíma og er ríkur vilji hjá ríkjunum að honum verði framhaldið,“ segir þar enn fremur.

Munu fylgjast með gangi mála í Sýrlandi

Þá var einnig til umræðu fall Assad-harðstjórnarinnar í Sýrlandi síðastliðna helgi á fundinum og kemur fram að ráðherrarnir fylgist náið með hvernig mál munu þróast þar á næstu misserum og hvort staðan komi til að hafa áhrif á gang mála á Gasasvæðinu og víðar.

Þá mun ný ríkisstjórn Donald Trumps taka við í Bandaríkjunum 20. janúar og áréttuðu norrænu ráðherrarnir á fundinum mikilvægi þess að standa vörð um náið samstarf Norðurlandanna og Bandaríkjanna.

Finnland tekur við formennsku á næsta ári

„Utanríkisráðherrar Norðurlandanna starfa náið saman undir formerkjum N5 en í dag var síðasti fundur þeirra á formennskuári Svíþjóðar. Finnland tekur við formennsku í norræna utanríkismálasamstarfinu á næsta ári.“

Segir í tilkynningunni að María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna, hafi sótt fundinn fyrir hönd Íslands í fjarveru Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert