Segir næstu stjórn sitja uppi með ákvörðun Bjarna

Þorgerður telur að ákvörðunin hafi verið lögleg, sem skipti máli.
Þorgerður telur að ákvörðunin hafi verið lögleg, sem skipti máli. Samsett mynd/mbl.is

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að næsta ríkisstjórn sitji uppi með ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að veita hvalveiðileyfi til næstu fimm ára.

Hún segir að Viðreisn, Samfylking og Flokkur fólksins muni ræða hvalveiðar í stjórnarmyndunarviðræðunum.

„Það vita náttúrulega allir mína skoðun, ég er ekki hlynnt hvalveiðum, en það skiptir máli að þegar svona er gert að það sé farið að lögum. Og sem lögfræðingur sýnist mér að það hafi verið gert þó að eitt sé löglegt, annað sé spurning um hina siðlegu hlið,“ segir Þorgerður í samtali við mbl.is og segir í því samhengi að Sjálfstæðisflokkurinn sé beintengdur hagsmunaaðilum sem tengjast hvalveiðum.

Hafa ekki rætt um leyfisveitinguna

Bjarni Bene­dikts­son, starf­andi mat­vælaráðherra, gaf í síðustu viku út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyf­is til veiða á hrefnu til tog- og hrefnu­veiðibáts­ins Hall­dórs Sig­urðsson­ar ÍS 14, sem er í eigu fé­lags­ins Tjald­tanga.

„Þetta er bara ákvörðunin sem er búið að taka og við sitjum uppi með hana. Ég held hins vegar að það sé mikilvægt líka að það sé fyrirsjáanleiki í ákvörðunum og ákvörðunartöku. Nú er þetta leyfi til fimm ára og við eigum bara eftir að ræða þetta, bara hreint út sagt. Við eigum eftir að ræða þetta leyfi.“

Þorgerður ræddi við mbl.is í Smiðju, skrifstofuhúsnæði Alþingis.
Þorgerður ræddi við mbl.is í Smiðju, skrifstofuhúsnæði Alþingis. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrirsjáanleiki skipti máli

Kemur það til greina af þinni hálfu, verði þessi ríkisstjórn að veruleika, að banna hvalveiðar með lagasetningu?

„Ég bara vil helst ekki tjá mig um þetta. En verandi þeirrar skoðunar sem ég er, varðandi hvalveiðar, að þá er líka allt hringl, mér finnst það ekki ábyrgðarfullt – hringl í stjórnsýslu.“

Hvað áttu við?

„Mér finnst fyrirsjáanleiki fyrir fólk og fyrirtæki skipta máli. Við eigum eftir að ræða þetta, við stelpurnar. Það er svona aðeins áherslumunur á skoðunum til hvalveiða og við erum þar, en það er bara best að segja sem minnst í því eins og staðan er núna,“ segir Þorgerður.

Munu ræða hvalveiðar

Spurð hvort hvalveiðar séu því ekki forgangsmál segir Þorgerður:

„Við munum ræða þetta að sjálfsögðu. En núna erum við að ræða þessa slöku afkomu sem þessi ríkisstjórn skilur eftir sig og þessar nýjustu tölur frá fjármálaráðuneytinu,“ segir Þorgerður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert