Ferli rammaáætlunar verði ekki lengra en tvö ár

Starfshópinn skipuðu þau: Hilmar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður, formaður, Björt Ólafsdóttir, fyrrv. …
Starfshópinn skipuðu þau: Hilmar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður, formaður, Björt Ólafsdóttir, fyrrv. alþingismaður og ráðherra umhverfismála, og Kolbeinn Óttarsson Proppé, frv. alþingismaður en hann er ekki á myndinni. Ljósmynd/Aðsend

Almennt ferli rammaáætlunar ætti ekki að taka lengri tíma en 24 mánuði samkvæmt tillögum sem starfshópur um endurskoðun rammaáætlunar skilaði í dag Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Þetta kom fram á fundi, sem Guðlaugur Þór stóð fyrir í dag, en tillögurnar voru kynntar nánar á vef Stjórnarráðsins.

Rætt var um þá vinnu og aðgerðir sem unnar hafa verið í orkumálum á þessu kjörtímabili.

Fór Guðlaugur Þór yfir árangur aðgerða sem hófust með útgáfu á Skýrslu um stöðu og áskoranir í orkumálum í mars 2022 og sáu þriðja áfanga rammaáætlunar afgreiddan frá Alþingi eftir langa biðstöðu.

Styttri frestur sveitarstjórna og fastákveðnir tímafrestir

Tillögurnar eru afrakstur starfshóps sem Guðlaugur skipaði í janúar á þessu ári. Í skýrslu starfshópsins, sem kynnt var í dag, er gert ráð fyrir ýmsum breytingum á lögum og reglum um rammaáætlun sem miða að því að einfalda kerfið og auka skilvirkni.

Meðal tillagna hópsins er að:

Skilvirkni rammaáætlunar verði aukin með fastákveðnum tímafrestum þannig að almennt verði ferli rammaáætlunar ekki lengra en 24 mánuðir.

Gert verði ráð fyrir því að ferli rammaáætlunar verði samfelluverkefni en eigi sér ekki einungis stað á fjögurra ára fresti.

Gert verði ráð fyrir einu samráðsferli hjá verkefnisstjórn rammaáætlunar í stað tveggja.

Frestur sveitarstjórna til ákvörðunar um landnotkun verði styttur.

Heimild og skylda verkefnisstjórnar rammaáætlunar til að afmarka verndarsvæði í áætluninni verði skýr og ótvíræð.

Ráðherra verði heimilt á grundvelli skilyrða að veita undanþágu til matsskyldra rannsókna á virkjunarhugmyndum fyrir virkjunarkosti í biðflokki.

Starfshópinn skipuðu þau: Hilmar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður, formaður, Björt Ólafsdóttir, fyrrv. alþingismaður og ráðherra umhverfismála, og Kolbeinn Óttarsson Proppé, frv. alþingismaður.

14 ára gömul lög

„Kastljósinu var beint að orkumálum á ný á þessu kjörtímabili eftir alltof langt hlé. Lög um rammaáætlun eru orðin um 14 ára gömul. Miklu skiptir að farið sé yfir og skoðað hvernig reynslan af þeim hefur verið og reynt að finna hvað megi breyta og bæta þannig að ferlið verði einfaldara og betra. Starfshópurinn hefur í skýrslu sinni komið með fjölmargar góðar og ítarlegar ábendingar um hvernig tryggja megi skilvirka og ábyrga nýtingu og vernd landsvæða á Íslandi. Nú verður það verkefni stjórnvalda á næstu misserum að taka tillögurnar til frekari skoðunar og leggja til breytingar á lögunum,” er haft eftir Guðlaugi í tilkynningu.

Skýrslan ásamt drögum starfshópsins að frumvarpi er nú komin í Samráðsgátt stjórnvalda þar sem hægt verður að koma með umsagnir og ábendingar til 1. febrúar nk.

Sjá má skýrslu starfshópsins hér.

Þá er skýrsla starfshópsins í samráðsgátt hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert