Kraumsverðlaunin afhent í 17. sinn

Listamenn og hljómsveitir er hlutu Kraumsverðlaunin 2024 og fulltrúar þeirra.
Listamenn og hljómsveitir er hlutu Kraumsverðlaunin 2024 og fulltrúar þeirra. Ljósmynd/Aðsend

Sex lista­menn og hljóm­sveit­ir hlutu fyrr í dag Kraum­sverðlaun­in, en þau eru veitt fyrir þær íslensku hljómplötur er þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Er þetta í sautjánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá skipuleggjendum Kraum­sverðlaun­anna.

Nöfn lista­manna og hljóm­sveita sem sigruðu fyr­ir hljóm­plöt­ur sín­ar:

  • Amor Vincit Omnia fyrir brb babe
  • Iðunn Einars fyrir Í hennar heimi
  • sideproject fyrir sourcepond
  • Sigrún fyrir Monster Milk
  • Sunna Margrét fyrir Finger on Tongue
  • Supersport fyrir allt sem hefur gerst

„Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa hátt í nítíu listamenn og hljómsveitir hlotið Kraumsverðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferlinum, frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 2008.

Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa Kraumsverðlaun fyrir plötur sínar eru; Agent Fresco, Anna Þorvaldsóttir, Ásgeir, Bjarki, BSÍ, Cell7, Daníel Bjarnason, Elín Hall, FM Belfast, GKR, Grísalappalía, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit, JDFR, Kvikindi, Kælan mikla, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Ojba Rasta, Ólöf Arnalds, Retro Stefson. Samaris, Sing Fang, Sóley, Una Torga og fjölmörg fleiri,“ að er kem­ur fram í til­kynn­ing­unni.

Kraumsverðlaunin 2024 voru valin af tólf manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina skipa þau Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Eldar Ástþórsson, Júlía Kröyer, Karólína Einars Maríudóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson, Vaka Orradóttir og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert