Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, býst við því að rannsókn yfir kaupsýslumanninum Quang Le ljúki fljótlega á nýju ári. Hún segir að skýrslutökur hafi gengið vel.
„Við höfum fengið greinagóðar upplýsingar hjá þeim sem við ræddum við,“ segir Elín Agnes.
„Við vonumst til þess að klára þessa rannsókn fljótlega á nýju ári enda miðar rannsóknin vel,“ segir Elín Agnes.
Hún segir þó enn eiga eftir fara yfir afmarkaða þætti málsins. „Það hefur verið farið yfir rosalegt magn skjala, bæði pappírs- og rafræn skjöl. Við tókum fjölda skýrsla af ætluðum þolendum í málinu og skýrslutökur hafa gengið vel,“ segir Elín Agnes.