Minntust 10 ára drengs sem lést á öðrum degi jóla

Bæna- og kyrrðarstund var haldin í Árbæjarkirkju í gær. Myndin …
Bæna- og kyrrðarstund var haldin í Árbæjarkirkju í gær. Myndin er úr safni. mbl.is/RAX

Bæna- og kyrrðarstund var haldin í gær í Árbæjarkirkju þar sem minnst var 10 ára drengs sem lést á annan í jólum. Andlát drengsins hefur haft mikil áhrif á samfélagið í Árbænum.

Drengurinn hét Maciej Andrzej Bied og bjó í Árbæ þar sem hann gekk í Árbæjarskóla og æfði fótbolta með Fylki en fjölskylda hans er pólsk.

DV greindi fyrst frá andláti drengsins en Vísir hefur einnig fjallað um málið.

Úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi

Maciej var með fjölskyldunni sinni á Ítalíu í bænum Nola þegar hann varð fyrir bíl.

Var hann á gangi með fjölskyldu sinni við gatnamót að brautarteinum þegar bíll kom að hinum megin við teinana.

Er viðvörunarbjöllur og ljós fóru í gang til að vara við að lest væri á leiðinni gaf ökumaður bílsins hins vegar í til að ná í gegnum brautarhliðið sem var við það að lokast og fór svo að bílnum var ekið á Maciej.

Hefur verið greint frá að ökumaður bílsins hafi tekið hann upp í bíl og ekið á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Um 200 manns minntust Maciej í gær

Þór Hauksson, sóknarprestur í Árbæjarkirkju, segir að Árbæjarkirkja hafi opnað dyr sínar á föstudag, degi eftir slysið, þar sem fólki var gefið tækifæri á að eiga kyrrðarstund og kveikja á kertum til að minnast drengsins.

Í framhaldinu hafi svo verið ákveðið að vera með kyrrðar- og bænastund í gær klukkan 11.

„Við vorum þar með svona kyrrðar- og tónlistar bænastund með hugleiðingu og svona spjalli um lífið og tilveruna,“ segir Þór og heldur áfram.

„Það komu þarna um 200 manns. Börn og foreldrar. Börn sem voru með honum í skóla og í íþróttum.“

Haft mikil áhrif á samfélagið

Segir Þór að með bænastundinni sé verið að gefa fólki tækifæri til að koma og vera saman og að mikil samkennd hafi verið í kirkjunni í gær.

„Þetta hefur haft mjög mikil áhrif á samfélagið. Fólk er með böggum hildar.“

Spurður um mikilvægi bænastundar eins og þeirrar sem var haldin í gær segir Þór að þær hjálpi fólki að finna að það standi ekki eitt.

„Það er mjög mikilvægt að fólk sé ekki að burðast með þetta eitt, að það finni það að það séu aðrir í sömu sporum.“

Hann segir kirkjuna vera áfram opna fyrir fólk til að koma saman og nefnir að eftir athöfnina í gær hafi fólk komið með börnin sín sem höfðu alls kyns spurningar.

„Við erum með opna kirkjuna fyrir fólk til að koma saman og við ítrekum það líka að fólk getur komið hérna þegar kirkjan er opin og haft samband við okkur og þá opnum við kirkjuna fyrir fólki.“

Hægt að styrkja fjölskylduna

Aðspurður segist Þór hafa verið í sambandi við vinkonu móður Maciej og segir hann fjölskylduna ekki vera á leið heim næstu daga þar sem hún sé nú í þeirri vinnu við að flytja Maciej heim. 

Vísir hefur greint frá því að fjölskylduvinurinn standi að baki söfnunar þar sem fólk getur hjálpað fjölskyldunni að mæta þeim kostnaði sem nú tekur við. 

Reikningurinn er í nafni Önnu, móður Maciej, og eru reikningsupplýsingarnar eftirfarandi:

Reikningsnúmer: 0511-14-011162

Kennitala: 010682-2829

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert