Lögregla kölluð til vegna öskra í heimahúsi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöld …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöld og í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óskað var aðstoðar lögreglu vegna hótana og eineltis þar sem málsaðilar eru báðir á unglingsaldri. Málið er til rannsóknar í samvinnu við barnavernd.

Þetta er meðal annars þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun. Alls eru 38 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili.

Tilkynnt var um óvelkomna konu á veitingastað sem var búin að koma sér fyrir inni í geymslurými og reyndist vera heimilislaus. Hún gekk leiðar sinnar er lögregla kom á vettvang.

Þá var tilkynnt um par í annarlegu ástandi sem var búið að koma sér fyrir í anddyri í fjölbýlishúsi. Það var farið er lögregla kom á vettvang.

Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna umferðaróhapps þar sem bifreið var ekið utan í aðra. Tjónvaldur var sagður ógnandi í hegðun og lét sig svo hverfa af vettvangi. Málið er til rannsóknar.

Óskað var aðstoðar lögreglu vegna öskra úr íbúð í heimahúsi. Er lögregla kom á vettvang og ræddi við húsráðanda reyndist sá hafa verið að horfa á fótbolta og verið að hvetja lið sitt af mikilli innlifun svo að hrópin heyrðust í næstu íbúðir.

Ökumaður var stöðvaður eftir að hafa verið mældur á 66 km/klst. þar sem leyfilegur hámarkshraði er 30 km/klst. Var hann bráðabirgðasviptur ökuréttindum vegna hraðakstursins til þriggja mánaða. Einnig var ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert