Skora á Guðrúnu að bjóða sig fram

Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrverandi ráðherra dómsmála.
Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrverandi ráðherra dómsmála. mbl.is/Árni Sæberg

Sjálfstæðisfélag Hveragerðis skorar á Guðrúnu Hafsteinsdóttur að bjóða sig fram til formanns á landsfundi flokksins.

Í ályktun félagsins segir að félagið telji Guðrúnu „réttan aðila til að taka við forystu Sjálfstæðisflokksins enda hokin af reynslu af mörgum mikilvægum sviðum samfélagsins“.

Þá hafi hún sýnt það í verki á hinu pólitíska sviði sem og á frjálsum markaði hvers megnug hún sé.

Þórdís tekur ekki slaginn

Undanfarnar vikur hafa fjórir verið sterklega orðaðir við framboð til formanns: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðrún Hafsteinsdóttir og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.

Í yfirlýsingu á Facebook í gær greindi Þórdís Kolbrún, sem er varaformaður flokksins, að hún myndi ekki gefa kost á sér á landsfundinum.

Hinir frambjóðendurnir hafa ekki greint frá ákvörðun sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert