Snorri Guðmundsson, sem oft er kenndur við rafrettuverslunina Póló, og Sverrir Þór Gunnarsson, sem kenndur hefur verið við rafrettuverslunina Drekann, voru nú rétt í þessu dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða hvor um sig 1,1 milljarð í sekt í stóra sígarettusmyglmálinu svokallaða, samtals 2,2 milljarða. Þá hlutu þeir einnig tveggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir þátt sinn í málinu.
Héraðsdómur samþykkti einnig upptökukröfu á ýmsum eignum þeirra, bæði fasteignum og bankainnistæðum, samtals um 200 milljónir í reiðufé auk fasteigna.
Í málinu voru þeir Sverrir og Snorri ákærðir fyrir að smygla inn sígarettum og vindlingum í níu sendingum, en í það heila var um að ræða 120.075 karton af sígarettum, eða 1.200.750 sígarettupakka og 5.400 karton af reyktóbaki.
Í tollskýrslum var tóbakið ýmist tilgreint sem prótein eða pappír og ákært var fyrir undanskot sem sögð voru vera upp á 740 milljónir króna, samkvæmt útreikningum rannsóknarlögreglumanns sem kom fyrir dóminn. Sagði hann að meðal annars hafi peningaþvættið verið til skoðunar en ákveðið var að einblína á tollalagaabrotin.
Var þeim Snorra og Sverri, í gegnum félagið Áfengi og tóbak ehf., því gert að hafa svikist um greiðslu tóbaksgjalda og vildi saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara að þeim yrði gert að greiða 1,4 milljarða í ríkissjóðs vegna undanskotanna.
Til viðbótar var þriðji maðurinn ákærður í tengslum við málið, en hann var einnig lykilvitni. Var réttað sérstaklega yfir honum og hlaut hann sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sinn þátt í málinu, en um er að ræða karlmann á fimmtugsaldri sem starfaði hjá Thorship á árunum 2012-2018. Var hann sölumaður hjá Thorskip og hafði verið í mestum samskiptum við þá Snorra og Sverri.
Í dómi héraðsdóms segir að bæði Snorri og Sverrir skuli sæta tveggja ára skilorðsbundnu fangelsi. Þeim er hins vegar gert að greiða sektina upp á 1,1 milljarð hvor um sig, samtals 2,2 milljarða, vegna ógreidds tóbaksgjalds innan fjögurra vikna. Ef þeir gera það ekki þá skulu þeir sæta fangelsi í eitt ár.
Þegar kemur að upptöku eigna samþykkti dómurinn kröfur saksóknara. Hjá Sverri er um að ræða stórt einbýlishús í Garðabæ, lítið iðnaðarhúsnæði í Reykjavík og um 55 milljónir sem voru fjármunir sem fundust á heimili hans, reikningum og í bankahólfi. Stór hluti þess er þó 40 milljónir sem lagðar voru að veði fyrir 17 Rolex úr sem hann fékk afhent að nýju eftir að saksóknari hafði haldlagt þau við húsleitina.
Í tilfelli Snorra er um að ræða 50% eignarhluta hans í sumarhúsi í Bláskógabyggð, atvinnuhúsnæði í Stykkishólmi og stóru einbýlishúsi í Garðabæ. Þá eru gerðir upptækir fjármuni upp á 133,6 milljónir, en þar af eru 12 milljónir sem lagðar voru að veði fyrir sjö úrum sem haldlögð voru af héraðssaksóknara á heimili hans.
Að lokum er gerð upptæk síðasta vörusendingin af þeim níu sem ákært er fyrir í málinu, en í henni voru um 44 þúsund karton af sígarettum.
Í ákæru og við aðalmeðferð málsins vísaði saksóknari til þess að þeir Sverrir og Snorri hafi komið því til leiðar við starfsmanninn að tilgreina ranga vörutegundir á aðflutningsskýrslum fyrir tollafgreiðslu, en vörulýsingum hafði verið breytt handvirkt úr sígarettum og tóbaki í sígarettupappír og filter í kerfum Thorship og við það féllu vörurnar í annan tollflokk.
Enginn hjá fyrirtækinu greip þetta og var ekki gerð athugasemd við þetta fyrr en tollverðir hjá tollstjóra opnuðu sendingu árið 2018, þá níundu sem hafði komið til landsins undir öðrum tollnúmerum en því er tilgreinir tóbakið. Við þeim blasti 4 tonna gámur sem var fullur af sígarettum.
Lykilvitnið vísaði fyrir dómi til þess að tolla ætti eftir því sem segði í reikningum sendingar en ekki í vörulýsingu. Að sögn vitnisins sendi hann reikningana alltaf frá sér, en sendingarnar voru engu að síður ranglega tollflokkaðir.
Fyrir dómi kom hins vegar einnig fram að hann hafi í þrígang farið í boðsferð með Áfengi og tóbaki, meðal annars til London á bardaga með Gunnari Nelson, en einnig til Las Vegas.
Verjendur Snorra og Sverris töldu við aðalmeðferð málsins að ábyrgð í málinu falli á herðar tollamiðlarans Thorship sem hafi haft veg og vanda af því að gera tollskýrslurnar.
Þá var einnig tekist nokkuð á um fyrningu brotanna og hvort að fyrningarfresturinn ætti að vera fimm eða tíu ár.
Uppfært: Í upphaflegri frétt mátti skilja það svo að Sverrir og Snorri hefðu samtals verið dæmdir til að greiða 1,1 milljarð í sekt í málinu. Hið rétta er að þeir þurfa að greiða 1,1 milljarð hvor um sig, eða samtals 2,2 milljarða. Hefur texti í fréttinni verið lagfærður svo þetta fari ekki á milli mála.