Vilja svör um hvort Ásthildur hafi boðið 2% hækkun

Minnihlutinn krefur forsætisráðherra um svör.
Minnihlutinn krefur forsætisráðherra um svör. Samsett mynd

Stjórnarandstaðan á Alþingi óskar svara forsætisráðherra vegna meintra afskipta Ásthildar Lóu Þórsdóttur menntamálaráðherra, eða starfsmanns á hennar vegum, í kjaraviðræðum Kennarasambands Íslands við ríki og sveitarfélög.

Fyrirspurn stjórnarandstöðunnar hefur verið send fjölmiðlum en undir hana rita Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins og Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknar.

Hafi boðið tveggja prósenta launahækkun til viðbótar

„Fregnir herma að hæstvirtur mennta- og barnamálaráðherra, eða starfsmaður á hans vegum, hafi boðið tveggja prósenta launahækkun til viðbótar við það sem þá var á borðinu. Þetta var kostnaður sem ríkissjóður átti að taka á sig til einhvers tíma í þeim tilgangi að liðka fyrir deilunni,“ segir í fyrirspurninni.

„Ráðherra hefur enga beina aðkomu að samningum sem þessum sem er alls ekki að ástæðulausu og er vart hægt að segja að þarna hafi verið að tryggja samstöðu á meðal aðila vinnumarkaðarins þegar boðin er launahækkun umfram aðra hópa.“

Þess ber að geta að Ásthildur Lóa hefur neitað aðkomu að kjaradeilunni en það gerði hún í samtali við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi á þriðjudag.

Vilja að Kristrún upplýsi um málavexti sem fyrst

Segjast þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins óska svara frá Kristrúnu þar sem miklir hagsmunir séu í húfi.

Vilja þeir að hún upplýsi um málavexti sem allra fyrst og lýsi með afdráttarlausum hætti afstöðu sinni til pólitískra afskipta af yfirstandandi kjaradeilu.

Fyrirspurnin kemur í ljósi þess að óundirbúinn fyrirspurnatími sem var á dagskrá þingfundar í dag var felldur niður en til stóð að Kristrún og Ásthildur stæðu þar fyrir svörum.

Spyrja fimm spurninga

Þá varpar stjórnarandstaðan fimm spurningum fram í fyrirspurn sinni:

1. Er rétt að mennta- og barnamálaráðherra, eða starfsmaður á hans vegum, hafi boðið samningsaðilum, í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög, 2% hækkun ofan á það sem þegar lá fyrir? Ef ekki, var aðkoma ráðherrans með öðrum hætti en hér er tilgreind, og hver þá?

2. Er rétt að ráðuneytisstjórar í forsætis- og fjármálaráðuneyti, eða aðrir starfsmenn þeirra ráðuneyta, hafi mætt í húsakynni ríkissáttasemjara á þessum tíma, og ef svo er, í hvaða erindagjörðum?

3. Ef svo er, var það með vitund og samþykki forsætisráðherra og/eða fjármálaráðherra?

4. Ef rétt er, liggja fyrir fjárheimildir vegna þessa?

5. Ef rétt er, lítur forsætisráðherra svo á að eðlilegt sé að mennta- og barnamálaráðherra stigi inn í kjaradeiluna með þessum hætti? Lítur forsætisráðherra almennt svo á að afskipti ráðherra af kjaradeilum séu eðlileg?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert