Lenda í vanskilum vegna Þórkötlu

Á sjötta tug Grindvíkinga hafa nú leitað réttar síns.
Á sjötta tug Grindvíkinga hafa nú leitað réttar síns. Morgunblaðið/Eggert

„Við erum með mál þar sem Þórkatla hefur ekki viðurkennt kröfur um dráttarvexti vegna greiðsludráttar. Þegar greiðsludráttur verður hjá Þórkötlu leiðir það til greiðsludráttar hjá okkar umbjóðendum sem síðan hafa þurft að greiða dráttarvexti til seljenda í sínum fasteignaviðskiptum.“

Þetta segir Telma Sif Reynisdóttir, lögmaður hjá Novum lögfræðiþjónustu, sem hefur tekið að sér á sjötta tug mála er snúa að uppgjöri Þórkötlu og Náttúruhamafaratryggingar Íslands við húseigendur í Grindavík.

Ekki samkvæmt venju

Dæmi eru um að Þórkatla hafi gert breytingar á greiðslufyrirkomulagi frá því sem kemur fram í kaupsamningi. Í hefðbundnum fasteignaviðskiptum er afsal undirritað og millifærsla framkvæmd á fasteignasölunni samtímis. Þórkatla hefur tekið sér vald til þess að greiða afsalsgreiðsluna allt að fimm dögum eftir þinglýsingu afsals og leggur til í lögskilauppgjöri að seljendur samþykki að afsalsgreiðslan dragist. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert