Sex smáhýsi fyrir heimilislaust fólk

Á þessu svæði í grennd við Fjarðarkaup eiga smáhýsin að …
Á þessu svæði í grennd við Fjarðarkaup eiga smáhýsin að vera. mbl.is/Árni Sæberg

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði vinna nú að breytingu á aðalskipulagi bæjarins til að koma fyrir sex smáhýsum fyrir heimilislausa.

Breyta á þúsund fermetra svæði austan við verslunina Fjarðarkaup og norðan við lóðina Hólshraun 5 í íbúðasvæði svo af þessu megi verða.

Áform þessi voru samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar í lok janúar. Í tillögu að breytingu á aðalskipulagi kemur fram að smáhýsi þessi séu hugsuð fyrir einstaklinga sem „þurfa á sértækri aðstoð að halda í samræmi við hugmyndafræði „Housing first“,“ eins og það er orðað.

Þrjár umsagnir bárust þegar auglýst var lýsing á fyrirhugaðri breytingu á aðalskipulagi. Í umsögn Vegagerðarinnar er áréttað að svæðið sem breyta á liggur þétt upp við framtíðarlegu nýrrar stofnbrautar sem tengja á Álftanesveg við Reykjanesbraut en þar eiga að vera mislæg gatnamót. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert