#65. - Tækifæri á Grænlandi og Jens Garðar í varaformanninn?

Liggja stór tækifæri fyrir Íslendinga á Grænlandi? Því svarar gullleitarmaðurinn Eldur Ólafsson í nýjasta þætti Spursmála en hann ritaði afar áhugaverða grein um málið sem birt var á miðopnu Morgunblaðsins nú í morgun.

Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og YouTube og er hún öllum aðgengileg.

Mun Jens Garðar bjóða sig fram?

Jens Garðar Helgason verður einnig spurður út í mögulega varaformannsframboð í Sjálfstæðisflokknum sem hann hefur títt verið orðaður við að undanförnu en í lok mánaðarins skunda Sjálfstæðismenn í Laugardalshöll og kjósa þar nýja forystu fyrir flokkinn.

Ásamt Jens Garðari ræðir fréttir vikunnar Brynja Dan Gunnarsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ og eini fulltrúi flokksins sem þar situr í bæjarstjórn. Hún er eigandi Extra-loppunnar sem síðustu sjö árin hefur gert það gott á markaði með notaðan fatnað.

Í þættinum verður Brynja spurð út í ófarir Framsóknarflokksins síðustu misseri en það verður seint sagt að uppgangur flokksins hafi verið á grænni grein undanfarið.

Rætt um stjórnmálastyrki 

Í lok þáttar ræðir Stefán Einar við lögfræðinginn Einar Geir Þorsteinsson sem sér ýmislegt athugavert við þau málalok sem nú blasa við í hinu svokallaða styrkjamáli þar sem Flokkur fólksins fékk greiddar 240 milljónir króna í trássi við lög. Hann telur lögfræðiálit sem fjármála- og efnahagsráðherra fékk í hendur ekki rétta leið til að útkljá málið.

Fylgist með Spursmálum alla föstudaga hér á mbl.is klukkan 14. 

Brynja Dan Gunnarsdóttir, Jens Garðar Helgason, Eldur Ólafsson og Einar …
Brynja Dan Gunnarsdóttir, Jens Garðar Helgason, Eldur Ólafsson og Einar Geir Þorsteinsson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum. Samsett mynd/mbl.is/María Matthíasdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert