Hleypur og styrkir rannsóknir á taugasjúkdómum

Védís Sigríður Ingvarsdóttir.
Védís Sigríður Ingvarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Védís Sigríður Ingvarsdóttir, meistaranemi í viðskiptagreiningu við Tækniháskólann í Danmörku (DTU), mun hlaupa sitt fyrsta hálfmaraþon í Los Angeles, til styrktar rannsóknum og meðferðum við taugasjúkdómum.

Védís hleypur í minningu föður síns, sem lést úr krabbameini árið 2014.

„Mig langar mjög mikið að hlaupa til minningar um pabba. Eins og núna þegar ég er að æfa mig að hlaupa þessi löngu hlaup sem eru rosalega erfið þá er rosalega mikil hvatning að hugsa til hans, og ég veit bara, þótt hann myndi örugglega vera í sjokki ef hann vissi að ég væri að hlaupa hálfmaraþon, að hann yrði mjög stoltur. Þannig að það er mikil hvatning að hlaupa til minningar um hann,“ segir Védís í samtali við Morgunblaðið.

Nýbyrjuð að hlaupa

Védís er nýbyrjuð að hlaupa en hún ákvað að skora á sjálfa sig síðasta sumar og reyna við útihlaup. Það var svo síðastliðið haust sem hálfmaraþonið kom til sögunnar.

„Svo hugsaði ég hvort ég gæti hlaupið 21 km, en ég byrjaði á plani í janúar og er bara að hlaupa á fullu og það eru þrjár vikur í þetta.“

Kærasti Védísar ætlar að hlaupa heilt maraþon í Los Angeles með vini sínum og Védís ákvað að slá til þegar hún sá að í boði væri að fara hálft maraþon til styrktar góðgerðarsamtökunum McCourt Foundation.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert