Ragna hættir á Alþingi og tekur við stöðu forstjóra

Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, tekur við nýju starfi í haust.
Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, tekur við nýju starfi í haust. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, lætur af störfum þann 1. ágúst næstkomandi og tekur við starfi forstjóra Landsnets. 

Hún greindi frá þessu í pósti til þingmanna og starfsfólks fyrir skömmu.

Ragna var ráðin skrifstofustjóri þann 1. september 2019 og hefur því gegnt starfinu í sex ár næsta haust.

Valin úr hópi 52 umsækjenda

Ragna var valin úr hópi 52 umsækjenda. Í tilkynningu frá Landsneti kemur fram að hún hafi víðtæka þekkingu á orkumálum en hún var meðal annars aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar í átta ár.

Haft er eftir Rögnu að það sé bæði spennandi áskorun og heiður að fá að leiða Landsnet á þessum umbreytingatímum í orkumálum.

„Það skiptir sköpum að fyrirtækinu gangi vel í að byggja upp flutningskerfið til að mæta bæði áskorunum samtímans og framtíðarinnar. Fyrir mig eru það mikil forréttindi að fá að leiða þetta öfluga teymi hjá Landsneti og leggja með þeim drög að framtíðinni og frekari árangri sem stuðlar að bættum lífsgæðum þjóðarinnar með öruggri og aðgengilegri orku,“ segir Ragna.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert