Landsbankinn tapaði Borgunarmáli í Landsrétti

Landsbankinn höfðaði málið þar sem bankinn taldi sig hlunnfarinn þegar …
Landsbankinn höfðaði málið þar sem bankinn taldi sig hlunnfarinn þegar 31,2% eignarhlutur í Borgun var seldur. Síðar var nafni Borgunar breytt í SaltPay og síðar Teya. Landsréttur féllst ekki á skaðabótaskyldu og hafnaði kröfu Landsbankans. mbl.is/Eggert/Kristinn Magnússon

Fé­lög­in BPS ehf., eign­ar­halds­fé­lagið Borg­un slf., Teya Iceland hf. og Haukur Odd­son, fyrrverandi forstjóri Borgunar, voru nú fyrir skömmu sýknuð í Landsrétti í dag af kröfu Landsbankans um að skaðabótaskylda félaganna yrði viðurkennd vegna meints tjóns sem Landsbankinn taldi sig hafa orðið fyrir þegar félagið seldi 31,2% eignarhlut sinn í Borgun. Staðfestir Landsréttur þar með fyrri dóm héraðsdóms í málinu.

Borgun breytti nafni sínu síðar í SaltPay og árið 2023 var nafninu aftur breytt í Teya.

Landsbankanum er gert að greiða félögunum 12 milljónir króna hverjum um sig fyrir málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti. Auk þess er Landsbankanum gert að greiða Teya Iceland hf. rúmlega 23 milljónir króna vegna útlagðs kostnaðar í málinu. 

Borgun breytti nafni sínu síðar í SaltPay og árið 2023 var nafninu aftur breytt í Teya.

Taldi Landsbankinn að félögin og Haukur hefðu ekki upplýst bankann um verðmæti sem bjuggu í hlut SaltPay (nú Teya Iceland hf) í Visa Europe Ltd og vætri hlutdeild sem fylgdi í söluhagnaði Visa Europe við nýtingu valréttarsamnings Visa Inc við Visa Europe. Höfðaði bankinn málið upphaflega árið 2016 í kjölfar fréttaumfjöllunar sem gekk undir nafninu Borgunarmálið.

Láðist að gæta hagsmuna sinna

Héraðsdómur hafði áður sýknað BPS, eignarhaldsfélagið Borgun, SaltPay IIB (nú Teya Iceland hf) og Hauk af kröfum Landsbankans. Var bankanum gert að greiða fé­lög­un­um og Hauki, hverj­um um sig, 10 millj­ón­ir króna í máls­kostnað auk rúm­lega 13 millj­óna til Teya Iceland hf vegna útlagðs kostnaðar í mál­inu. 

Taldi Héraðsdómur Reykjavíkur að ekki yrði séð að tilteknir  full­trú­ar fyr­ir­tækj­anna hafi við kaup­in, eða í aðdrag­anda þeirra, með svik­sam­leg­um hætti leynt Lands­bank­ann um hlut Teya Iceland hf í Visa Europe Ltd. og þá væntu hlut­deild er hon­um fylgdi í sölu­hagnaði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu val­rétt­ar­samn­ings Visa Inc. og Visa Europe Ltd.  

Sagði í dómi héraðsdóms að Lands­bank­inn hefði mátt gera sér grein fyr­ir því í tengsl­um við um­rædda sölu á hlut­um bank­ans að Borg­un ætti, eins og Valitor, lík­leg­ast aðild að Visa Europe með til­svar­andi rétt­ind­um.

Það hafi því verið á ábyrgð bank­ans að kanna stöðu Borg­un­ar gangvart Visa Europe. Var í héraði meðal annars vísað til þess að Landsbankinn, sem fjármálastofnun, byggi yfir mik­illi reynslu og sérþekk­ingu á sviði kortaviðskipta, reynsla þessi hljóti að leiða til þess að Lands­bank­inn geti ekki rétti­lega haldið uppi kröfu um viður­kenn­ingu bóta­skyldu á þeim for­send­um sem kraf­an byggði á. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert