Vátryggingafélögin meta flóðatjón fyrir NTÍ

Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri NTÍ, segir að NTÍ eigi almennt …
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri NTÍ, segir að NTÍ eigi almennt í góðu samstarfi við vátryggingafélögin. Samsett mynd/ljósmynd/Aðsend/mbl.is/Karítas

Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) hefur gert samkomulag við vátryggingafélögin um umsjón með tjónamati og samskipti við tjónþola vegna tjóna sökum sjávarflóða undanfarinna daga.

Viðskiptavinir geta tilkynnt tjón beint til síns vátryggingafélags.

NTÍ vátryggir eignir gegn skemmdum eða eyðileggingu af völdum flóðbylgju frá sjó sem gengur skyndilega á land.

Allar húseignir sem eru brunatryggðar hjá einu af almennu vátryggingafélögunum njóta vátryggingaverndar hjá NTÍ.

„Búa yfir viðbragði sem við búum ekki yfir“

Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri NTÍ, segir í samtali við mbl.is að NTÍ eigi almennt í góðu samstarfi við vátryggingafélögin.

Heimild sé í lögum að gera samkomulag við félögin með þessum hætti og að verkefnið nú sé þannig vaxið að gera þurfi ýmsar ráðstafanir til að varna frekara tjóni. Það þurfi að gerast fljótt og ekki sé gott að það bíði í marga daga.

„Vátryggingafélögin hafa innan sinna raða fólk sem er í startholunum til að fara í tjónamat. Við erum ekki með fast starfsfólk sem tjónamatsmenn og þurfum alltaf að ráða inn verktaka,“ segir Hulda.

Verktakar NTÍ koma að sögn Huldu almennt frá verkfræðistofum, því oftast sé um að ræða tjón sem geti varðað burðarvirkismál og fleira.

„Þetta eru óvenjuflókin og stór flóðatjón fyrir okkur og félögin búa yfir viðbragði sem við búum ekki yfir og eru þaulvön í þessari tegund tjóna.“

NTÍ kynnir niðurstöðuna í kjölfar tjónamats

Vátryggingafélag viðkomandi viðskiptavinar mun hafa samband og upplýsa um áætlaða framkvæmd tjónaskoðunar og eftir atvikum björgunaraðgerða fyrir hönd NTÍ.

„Öll samskipti viðskiptavinar eru við vátryggingafélag hans, allt þar til tjónamat vátryggingafélagsins liggur fyrir.

Þá sendir vátryggingafélagið allar upplýsingar um tjónið til NTÍ sem mun annast kynningu á niðurstöðunni til viðskiptavinar og annast öll samskipti við hann í framhaldinu,“ að því er fram kemur í tilkynningu frá NTÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert