Blaðamannaverðlaun ársins afhent

Þau sem tilnefnd voru í Sykursalnum í Grósku í kvöld.
Þau sem tilnefnd voru í Sykursalnum í Grósku í kvöld. mbl.is/Karítas

Freyr Gígja Gunnarsson hjá Rúv hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2024 fyrir fréttaskýringar sínar í Speglinum á Rás 2.

Eva Björk Benediktsdóttir hjá Rúv, var þá verðlaunuð fyrir viðtal ársins. Tók hún viðtal við Hafdísi Báru Óskarsdóttur, sem varð fyrir lífshættulegri líkamsárás af hendi barnsföður síns og fyrrverandi sambýlismanns.

Sunna Ósk Logadóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson hjá Heimildinni hlutu viðurkenningu fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins. Viðurkenninguna hlutu þau fyrir fréttaskýringar sínar um Running Tide.

Berghildur Erla Bernharðsdóttir hjá Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hlaut þá verðlaun fyrir umfjöllun ársins fyrir sjónvarpsþáttaröðina Vistheimilin.

Verðlaunin voru afhent í Sykursal Grósku í dag.

Einstök þrautseigja Freys

Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að Freyr Gígja hafi sýnt einstaka þrautseigju í að krefja stjórnvöld um svör í ýmsum stórum fréttamálum og ítrekað nýtt upplýsingarétt almennings til að draga nýjar upplýsingar fram í dagsljósið og setja þær í samhengi.

Það hafi einna helst kjarnast í umfjöllun hans um samskipti ráðamanna í aðdraganda þess að brottflutningi Yazan Tamimi var slegið á frest, en málið var síðasti naglinn í líkkistu ríkisstjórnar Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna.

Auk Freys voru þær Auður Jónsdóttir hjá Heimildinni fyrir fjölbreytt viðtöl og umfjallanir og Hólmfríður María Ragnhildardóttir hjá Morgunblaðinu og mbl.is fyrir umfjöllun um skólakerfi í vanda.

Sjónvarpsmiðillinn nýttur á áhrifaríkan hátt

Eva Björk Benediktsdóttir var talin af dómnefnd nýta sjónvarpsmiðilinn á áhrifaríkan hátt. Þá segir í rökstuðningi að viðmælandinn dragi ekkert undan svo úr verður sláandi frásögn.

Auk Evu voru tilnefnd þau Erla Hlynsdóttir hjá Heimildinni fyrir viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur, fyrrverandi biskup Íslands og Kolbeinn Tumi Daðason hjá Stöð 2, Vísi og Bylgjunni fyrir viðtal við Davíð Viðarsson.

Afhjúpun skýjaborga

Þau Sunna Ósk og Bjartmar voru að mati dómnefndar talin afhjúpa skýjaborgir fyrirtækisins Running Tide sem seldi vanhugsaðar lausnir á loftslagsvandanum í áhrifamikilli umfjöllun en fyrirtækið hætti starfsemi sinni bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum um það leyti sem umfjöllunin birtist.

Auk þeirra voru tilnefnd annars vegar Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Árni Þór Theodórsson hjá Rúv fyrir umfjöllun um unga, fatlaða einstaklinga sem vistaðir eru á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða og hins vegar Urður Örlygsdóttir og Arnar Þórisson hjá Rúv fyrir umfjöllun um mansal á matsölustöðum Quang Le.

Umfjöllunarefni gerð myndræn skil á hugmyndaríkan og áhrifaríkan hátt

Í rökstuðningi dómnefndar um umfjöllun Berghildar Erlu segir að rannsóknarvinna blaðamannsins skíni í gegn í ítarlegum og vönduðum þáttum þar sem viðmælendur stíga fram og ræða þungbæra lífsreynslu, margir hverjir í fyrsta sinn. Erfitt sé að gera umfjöllunarefninu myndræn skil en það sé leyst á bæði hugmyndaríkan og áhrifamikinn hátt.

Auk Berghildar voru tilnefnd þau Guðrún Hulda Pálsdóttir hjá Bændablaðinu fyrir umfjöllun um einokun á íslenskum markaði með koltvísýring og Pétur Magnússon hjá Rúv fyrir útvarpsþáttaröðina Skaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert