Heiða hættir sem formaður SÍS

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og formaður sambandsins.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og formaður sambandsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hyggst hætta sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga á landsfundi sambandsins á fimmtudag. 

RÚV greinir frá þessu og segir þetta koma fram í viðtali í Kastljósi í kvöld. Á fréttavef RÚV segir að Heiða hafi tilkynnti að hún muni stíga til hliðar á landsfundi sambandsins sem haldinn er á fimmtudag. Nýr fulltrúi yrði kosinn í stjórnina í hennar stað.

Þungt andrúmsloft í stjórninni

And­rúms­loftið í stjórn Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hefur verið mjög þungt eftir að nýi borgarstjórinn klauf sig frá stjórninni í aðdraganda kjarasamninga við kennara.

Stjórnarmenn hafa jafnvel sagt að Heiða sé „rúin trausti“ inn­an sam­bands­ins eft­ir umrót vegna kjara­deilu við kenn­ara.

Auk þess hefur umfjöllun Morgunblaðsins um laun Heiðu, sem bæði borgarstjóra og formanns SÍS, einnig vakið athygli en hún hefur fengið 3,8 milljónir króna greiddar á mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert