Matvælastofnun óskar eftir lögreglurannsókn

Farið er fram á rannsókn á fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum.
Farið er fram á rannsókn á fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum. mbl.is/Þorgeir

Matvælastofnun hefur farið fram á opinbera rannsókn lögreglu vegna meintra brota fiskeldisfyrirtækis á Austfjörðum um velferð dýra.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef MAST. 

Meint brot varða útsetningu seiða í of kaldan sjó með þeim afleiðingum að þau drápust í stórum stíl. 

„Matvælastofnun telur meint brot varða við ákveðin ákvæði dýravelferðarlaga. Stofnunin metur brotin alvarleg og hefur þar af leiðandi óskað eftir lögreglurannsókn.

Lögreglan á Austurlandi hefur málið til meðferðar og veitir Matvælastofnun ekki frekari upplýsingar um málið að sinni,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert