Ráðherra hvetur fólk til að sækja um í lögreglufræði

„Lögreglan er ein okkar mikilvægasta stétt,“ segir Þorbjörg.
„Lögreglan er ein okkar mikilvægasta stétt,“ segir Þorbjörg. mbl.is/Hari

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hvetur alla áhugasama um fjölbreytt og krefjandi starf í þágu samfélagsins til að sækja um nám í lögreglufræði. Nýverið var ákveðið að fjölga bæði stöðugildum innan lögreglunnar um land allt og þeim sem komast inn í lögreglunám. Umsóknarfrestur rennur út 31. mars.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

„Lögreglan er ein okkar mikilvægasta stétt. Hún sinnir margvíslegum verkefnum, allt frá því að mæta í skóla og kenna börnum umferðarreglurnar til rannsókna á stórum sakamálum. Við búum í fjölbreyttu samfélagi og þurfum fólk með alls konar bakgrunn,“ segir Þorbjörg.

„Ég starfaði sjálf á ákærusviði hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og er þakklát fyrir þá reynslu sem ég öðlaðist á þeim tíma. Lögreglan vinnur aðdáunarvert starf á degi hverjum. Án lögreglunnar virkar ekki samfélagið. Við eigum að hampa stéttinni og hvetja öflugt fólk til að sækja um þetta mikilvæga nám.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert