Umferðarljósabúnaður verður endurnýjaður á fimm gatnamótum á Höfðabakka í sumar.
Samhliða verður hámarkshraði á Höfðabakka lækkaður í 50 km á klukkustund og ýmsar lagfæringar gerðar til að bæta aðgengi og öryggi allra vegfarenda. Markmiðið með breytingunum er þó fyrst og fremst að bæta umferðaröryggi óvarinna vegfarenda.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdirnar en um er að ræða samvinnuverkefni með Vegagerðinni.
Gatnamótin sem um ræðir eru eftirtalin:
Endurnýjaður búnaður mun bjóða upp á rauntímastýringu umferðarljósanna þar sem nýrri tegund radarskynjara verður komið fyrir þannig að unnt er að ákvarða stýringu út frá umferðarflæði á hverjum tíma.
Í tilkynningunni segir að markmiðið með breytingunum sé að bæta umferðaröryggi óvarinna vegfarenda, meðal annars með því að stytta leið þeirra yfir götu en einnig að bæta skilvirkni gatnamótanna fyrir alla vegfarendur með bættri ljósastýringu og þar með umferðarflæði.
Samhliða endurnýjun búnaðar verða ljósastýringar yfirfarnar og lagfæringar gerðar á nánasta umhverfi með tilliti til aðgengis og öryggis óvarinna vegfarenda.
Má þar nefna lagfæringar á kantsteinum, breikkun miðeyja, gerð upphækkana, leiðarlína og varúðarsvæðis.
Þá verður götulýsing bætt og hnappabox með hljóðgjafa fyrir sjónskerta sett við allar gönguþveranir.
Umfangsmeiri breytingar eru þá áætlaðar á gatnamótum Höfðabakka við Bíldshöfða, við Vesturlandsveg og við Bæjarháls.
Við Bíldshöfða verða sett umferðarljós á hægribeygjuframhjáhlaup frá Bíldshöfða suður Höfðabakka.
Við Vesturlandsveg verða bognir staurar með umferðarljósum fjarlægðir vegna slæms aðgengis og slysahættu fyrir tæknifólk. Þess í stað verður umferðarljósum bætt við á miðeyju.
Við Bæjarháls verða tvenn hægribeygjuframhjáhlaup fjarlægð til að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á gatnamótunum. Annars vegar á Höfðabakka til suðurs inn á Streng og hins vegar á Bæjarhálsi til hægri inn á Höfðabakka.
Til viðbótar er gert ráð fyrir stofnstíg fyrir hjólandi meðfram Höfðabakka að austanverðu í framtíðinni.
Áætlað er að framkvæmdir við endurnýjun umferðarljósabúnaðar hefjist nú í vor og ljúki í haust og er heildarkostnaður áætlaður um 250 milljónir króna.
Reykjavíkurborg greiðir um einn þriðja af þeirri upphæð og Vegagerðin um tvo þriðju, sem segir í tilkynningunni.