„Veðurstofan er búin að vera að vinna fyrir okkur nýtt áhættumat í vetur, aðallega varðandi flóðamál sem gætu komið annars vegar niður Skjálfandafljót og hins vegar niður Jökulsá á Fjöllum,“ segir Hermann Karlsson, fulltrúi almannavarna og lögreglumaður á Norðurlandi.
Boðað hefur verið til íbúafundar vegna mögulegs eldgoss í Bárðarbungu bæði í Þingeyjarsveit og Norðurþingi 9. apríl nk.
Hermann segir að íbúar hafi farið að kalla eftir frekari upplýsingum þegar jörð skalf í janúar og jafnvel var talið að drægi til tíðinda í Bárðarbungu.
„Við búumst í sjálfu sér ekki við að það fari að gjósa, en það kom nýtt áhættumat í janúar sem við vildum kynna fyrir íbúum þar sem farið er betur yfir flóðavarnir ef til goss kæmi.“
Hermann segir að aðgerðaáætlun sé til fyrir sveitirnar frá 2015 og í nýju áhættumati sé bara verið að bæta aðeins við upplýsingarnar.
„Við erum með skýrari mynd á t.d. rýmingarsvæðin, en það eru ákveðnir bæir og svæði í byggð sem eru ekki jafn útsett og var í fyrri áætluninni.“
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.