Tveir hrepptu sögulega háan vinning

Potturinn var sögulega hár.
Potturinn var sögulega hár.

Tveir heppnir miðahafar voru með fyrsta vinning í Lottóútdrætti kvöldsins og fær hvor um sig rúmlega 79,2 milljónir króna. Annar var með miðann sinn í áskrift en hinn keypti miðann í Lottó-appinu. 

Pottur kvöldsins var sögulega hár eða 160 milljónir eða 21 milljón meira en fyrra met. Í heildina voru 20 þúsund manns sem hlutu vinning í útdrætti vikunnar, þó misstóra. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá íslenskri getspá. 

Fjórir voru með Bónusvinning kvöldsins og fékk hver og einn 530 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Krambúðinni í Búðardal, einn í Lottó-appinu og tveir á lotto.is. 

Fyrsti vinningurinn í Jóker gekk ekki út í kvöld en níu nældu sér í annan vinning sem er upp á 125 þúsund krónur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert