Fara af hættustigi yfir á óvissustig

Horft yfir Grindavík.
Horft yfir Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Landris mælist hraðar núna en í kjölfar síðustu gosa. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra. 

„Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að skýr merki eru um að landris heldur áfram undir Svartsengi og mælist það landris hraðar núna en í kjölfar síðustu eldgosa. Of snemmt er að segja til um hvernig hraði kvikusöfnunar undir Svartsengi mun þróast,“ segir í tilkynningunni.

Stærsta kvikuhlaupið síðan 2023

Ríkislögreglustjóri segir of snemmt að segja til um hvernig hraði kvikusöfnunar undir Svartsengi muni þróast. Á vef Veðurstofunnar komi fram að um 30 milljón rúmmetrar hafi farið úr kvikuhólfinu 1. apríl sem geri þetta að stærsta kvikuhlaupinu síðan 10. nóvember 2023.

Í tilkynningunni segir á meðan kvikusöfnun haldi áfram undir Svartsengi séu líkur á endurteknum kvikuhlaupum og jafnvel eldgosum.

„Eldgosið sem hófst 1. apríl sl. stóð yfir í nokkra klukkutíma og var stysta eldgosið í þessari goshrinu á Sundhnúksgígaröðinni, af þeim átta sem hafa orðið frá desember 2023. Þrátt fyrir að eldgosið hafi verið stutt, er jarðskjálftavirkni enn á svæðinu og fylgst er náið með þróuninni,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert