Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Lögregla rannsakar andlát manns úr Þorlákshöfn.
Lögregla rannsakar andlát manns úr Þorlákshöfn. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Sigurður Bogi
Héraðsdómur Suðurlands hefur samþykkt áframhaldandi gæsluvarðhaldsbeiðni yfir þremur sakborningum í frelsissviptingar-, fjárkúgunar- og manndrápsmáli sem upp kom 10. mars. Gæsluvarðhaldið er til fjögurra vikna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. 

Rannsókn miði vel 

„Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í gærkvöldi að mennirnir skyldu allir þrír sæta gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna. Rannsókn málsins miðar vel og hefur lögreglan á Suðurlandi eins og áður hefur komið fram notið aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, embættis héraðssaksóknara og embættis ríkislögreglustjóra við hana,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert