Góður gangur hjá Norðuráli

Kjaraviðræður fyrir starfsmenn eru í fullum gangi.
Kjaraviðræður fyrir starfsmenn eru í fullum gangi. mbl.is/Árni Sæberg

Góður gangur er kominn í kjaraviðræður Verkalýðsfélags Akraness og fleiri stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins og Norðurál vegna starfsmanna hjá verksmiðjunni á Grundartanga um endurnýjun kjarasamninga.

Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, var bjartsýnn á framhald viðræðnanna í gær og gerir sér jafnvel vonir um að unnt verði að skrifa undir nýjan kjarasamning með Norðuráli síðar í þessari viku.

Staðan í viðræðum stéttarfélaganna við SA og Elkem Ísland er óljós.

„Það miðar mjög vel áfram við Norðurál og við erum langt komin þar. Ég er að gæla við að við náum að klára það jafnvel í þessari viku,“ segir Vilhjálmur í samtali við Morgunblaðið.

„Varðandi Elkem erum við í samtali við þau en það eru eitt eða tvö eða atriði sem standa út af, sem er verið að vinna í og reynt er að finna flöt á. Eins og staðan er núna, alla vega hvað Norðurál varðar, lítur hún mun betur út en hún gerði fyrir örfáum dögum,“ segir Vilhjálmur.

Stöðugar viðræður og samtöl eru einnig í gangi í viðræðunum við Elkem en að sögn Vilhjálms er ekki enn búið að finna flöt á ágreiningi sem hefur verið uppi um fá atriði í þeim viðræðum.

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert