Styrkja kaup á nytjahjólum um 200.000

Nytjahjól eru dýr í innkaupum en geta nýst með sams …
Nytjahjól eru dýr í innkaupum en geta nýst með sams konar hætti og einkabílar og þannig dregið úr akstri og brennslu jarðefnaeldsneytis. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að veita sérstaka styrki til kaupa á nytjahjólum í gegnum Loftslags- og orkusjóð. Að því er fram kemur í tilkynningu verða styrkirnir allt að 200.000 kr. eða að hámarki 1/3 af kaupverði hvers hjóls.

Nytjahjól eru sérstaklega hönnuð til þess að flytja farm og farþega. Þau eru dýr í innkaupum en geta nýst með sams konar hætti og einkabílar og þannig dregið úr akstri og brennslu jarðefnaeldsneytis.

„Rafbílavæðingin skiptir máli, en til þess að ná alvöru árangri í loftslagsmálum þurfum við ekki síður að ýta undir breyttar ferðavenjur, vistvænni og fjölbreyttari ferðamáta sem gera líka samfélagið okkar skemmtilegra. Stuðningur við kaup á nytjahjólum er liður í þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar,“ er haft eftir ráðherra í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert