Einn hlaut 441 þúsund krónur

Potturinn verður tvöfaldur næsta laugardag.
Potturinn verður tvöfaldur næsta laugardag. mbl.is/Karítas

Enginn hlaut fyrsta vinning í Lottóút­drætti kvölds­ins og verður því potturinn tvöfaldur næsta laugardag.

Einn miðahafi var með bónus vinninginn sem gerir hann rúmum 441 þúsund krónum ríkari. Var sá miði keyptur á Sbarro í Suðurfelli.

Þá var enginn með fyrsta vinning í Jókernum í kvöld en fjórir nældu sér hins vegar í annan vinning og fá fyrir það 125 þúsund krónur hver.

Tveir þeirra miða eru í áskrift, einn var keyptur á lotto.is og einn í Lottó-appinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert