Dóttir hins látna liggur ein undir grun

Að svö stöddu eru engir fleiri grunaðir um aðkomu að …
Að svö stöddu eru engir fleiri grunaðir um aðkomu að andláti mannsins. Mynd úr safni. mbl.is/Þorgeir

Kona sem var handtekin á höfuðborgarsvæðinu á föstudag vegna andláts föður síns er með réttarstöðu sakbornings í málinu. Að svo stöddu eru engir fleiri grunaðir um aðkomu að andlátinu.

Lögregla var kölluð út snemma á föstudagsmorgun eftir að tilkynning hafi borist um meðvitundarlausan mann í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan skrifar í tilkynningu að hann hafi verið fluttur á slysadeild, þar sem hann hann hafi látist skömmu síðar.

Kona um þrítugt, sem er dóttir mannsins samkvæmt heimildum mbl.is, var handtekin í húsinu og úrskurðuð í gæsluvarðhald seinna um kvöldið.

Lögreglan vill ekkert gefa upp

Lögreglan heldur spilunum þétt að sér og gefur ekki einu sinni upp bæjarfélagið þar sem lögregla var kölluð út. Útkallið hafi verið á höfuðborgarsvæðinu, en í ekki Reykjavík.

Að svo stöddu eru engir fleiri grunaðir um aðkomu að andláti mannsins. „Nei, það eru ekki neinir fleiri á leiðinni í gæsluvarðhald,“ segir Elín Agnes Krist­ín­ar­dótt­ir, hjá miðlægri rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, en tekur fram að auðvitað geti eitthvað nýtt komið í ljós. 

Veistu meira? Þú getur sent okkur ábendingar á frettir@mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert