Kona í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið. mbl.is/Árni Sæberg

Kona um þrítugt var í fyrrakvöld úrskurðuð í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness til miðvikudagsins 16. apríl á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mannsláti í umdæminu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

„Það var snemma á föstudagsmorgun sem lögreglu barst tilkynning um meðvitundarlausan karlmann í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu. Viðbragðsaðilar héldu strax á staðinn, en karlmaðurinn var þungt haldinn þegar að var komið. Hann var fluttur á slysadeild og lést þar síðar um daginn. Konan, sem er í gæsluvarðhaldi, var handtekin í fyrrnefndu húsi,“ segir í tilkynningunni. 

Þá kemur fram í tilkynningunni að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert