Ákærður fyrir tilraun til manndráps

Kjalarnes. Maðurinn er ákærður fyrir manndráp.
Kjalarnes. Maðurinn er ákærður fyrir manndráp. mbl.is/Sigurður Bogi

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa á nýársnótt lagt nokkrum sinnum til tveggja manna með hníf, og þar með reynt að svipta þá lífi, eins og segir í ákærunni sem mbl.is hefur undir höndum. 

Árásin átti sér stað á Kjalarnesi.

Í ákærunni segir að sakborningurinn hafi stungið brotaþolana ítrekað. Annan stakk hann ítrekað í bakið með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættuleg stungusár á aftanverðum vinstri brjóstkassa með miklum blæðingum.

Hlaut hann einnig áverka „í gegnum húð á mótum brjóstkassa og kviðs, gat á milli rifja 8 og 9 vinstra megin og loft- og blóðbrjóst af völdum áverkanna“.

Hlaut lífshættulega áverka

Er sakborningurinn einnig sagður hafa stungið hinn brotaþolann ítrekað í brjóstkassann og kviðinn.

Sá hlaut einnig lífshættuleg stungusár á vinstri brjóstkassa í gegnum brjóstvöðva. 

Er þess krafist að sakborningurinn greiði brotaþolum miskabætur, öðrum fjórar milljónir króna auk vaxta og hinum fimm milljónir króna auk vaxta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert