VÍS snýr aftur á Akranes

Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, og Ingibjörg Ólafsdóttir, þjónustustjóri VÍS …
Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, og Ingibjörg Ólafsdóttir, þjónustustjóri VÍS á Vesturlandi. Samsett mynd Ljósmynd/VÍS

Tryggingafélagið VÍS mun opna þjónustuskrifstofu á Akranesi í sumar. Skrifstofan verður í sama húsnæði og Íslandsbanki, á Dalbraut 1, en stutt er síðan tilkynnt var um samstarf milli VÍS og Íslandsbanka.

Þetta segir í tilkynningu frá VÍS.

Segir þar enn fremur að opnunin sé liður í stefnu félagsins um að efla enn frekar þjónustu sína á landsbyggðinni en á síðasta ári bættist við ný skrifstofa í Reykjanesbæ.

Full tilhlökkunar að mæta aftur á Skagann

„Þrátt fyrir að hægt sé að gera mjög margt á netinu tengt tryggingum þá vill fólk hafa valmöguleikann á að tala við aðra manneskju, sérstaklega í flóknari málum. Þá vilja viðskiptavinir okkar geta talað við einhvern sem getur leiðbeint þeim og tekið raunverulegt tillit til aðstæðna þeirra.

Í slíkum aðstæðum skiptir sköpum að geta boðið upp á framúrskarandi þjónustu í heimabyggð. Við erum full tilhlökkunar að mæta aftur á Skagann,” er haft eftir Guðnýju Helgu Herbertsdóttur, forstjóra VÍS.

Skrifstofan mun opna á sumarmánuðum

Þá mun Ingibjörg Ólafsdóttir veita skrifstofunni forystu en hún tók nýlega við starfi sem þjónustustjóri VÍS á Vesturlandi, að því er segir í tilkynningunni.

Inga býr yfir mikilli reynslu en hún hefur starfað hjá VÍS í þrjá áratugi og mun hún ásamt samstarfsfólki sínu sjá til þess að viðskiptavinir á Vesturlandi hljóti framúrskarandi þjónustu.

Starfsmaður VÍS mun sitja í útibúi Íslandsbanka frá byrjun maí en skrifstofa VÍS mun svo opna á sumarmánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert