Íslendingur hreppti rúmlega 1,5 milljón íslenskra króna þegar hann vann þriðja vinning í Víkingalottói kvöldsins. Maðurinn var með miða í áskrift.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá íslenskri getspá.
Fyrsti vinningur kvöldsins gekk ekki út að þessu sinni en Norðmaður og Dani skiptu með sér 2. vinningi og fengu þeir rúmar 26 milljónir í sinn hlut.
Enginn var með fyrsta vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en var með 2. vinning. Fékk hann 125 þúsund krónur í vasann.