Erfiðara að uppfylla lögboðið hlutverk

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur breytt verklagi sem gerir fjármálaráði erfiðara …
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur breytt verklagi sem gerir fjármálaráði erfiðara um vik að leggja mat á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. mbl.is/Eyþór Árnason

Fjármálaráð gagnrýnir nýtt verklag sem ríkisstjórnin hefur boðað hvað varðar útfærslu á skiptingu á útgjöldum til útgjaldasviða, sem geri ráðinu erfitt um vik að uppfylla lögbundið hlutverk sitt.

Nýja verklagið felur í sér að í fjármálaáætlun komi fram skipting útgjalda til málefnasviða en ráðherrum málefnasviðanna er í kjölfarið falið að ákveða hvernig fjármunum er skipt innan málasviðanna. Sú skipting kemur því fyrst fram í fjárlögum að hausti en kom áður fram í fjármálaáætlun.

Fjármálaráð rýnir fjármálastefnu og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, en ekki fjárlög.

Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt verklagið harðlega. Allir þingmenn hennar gengu út úr þingsal við umræðu á fjármálaáætlun til að mótmæla skorti á gögnum. 

Fjármálaráð segir í nýbirtri álitsgerð sinni vegna fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar að hið nýja verklag feli það í sér að framkvæmd fjármálaáætlunarinnar sé undanskilin rýni ráðsins þar sem hún komi að auknu leyti fram í fjárlögum. Fyrir vikið eigi ráðið erfiðara með að uppfylla lögboðið hlutverk sitt.

„Lög um opinber fjármál kveða á um að fjármálaráð skuli veita umsagnir um fjármálastefnu og fjármálaáætlun en fjárlög eru undanskilin rýni ráðsins. Þetta nýja verklag gerir það því að verkum að fjármálaráð á erfiðara með en áður að uppfylla lögbundið hlutverk sitt að greina og leggja mat sitt á hvernig markmiðum fjármálaáætlunar skuli náð út frá þeim grunngildum sem lögin kveða um að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggð á,“ segir í áliti ráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert