Hætta að nota Flatahraun fyrir neyðarvistun

Börn hafa verið vistuð í Flatahrauni frá því október við …
Börn hafa verið vistuð í Flatahrauni frá því október við óboðlegar aðstæður. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Aðsend mynd

Í dag verður hætt að nota lögreglustöðina í Flatahrauni í Hafnarfirði fyrir neyðarvistun barna og unglinga. Úrræðið hefur verið nýtt frá því í lok október á síðasta ári og hafa börn niður í 12 ára verið vistuð þar í fangaklefum við óboðlegar aðstæður. 

Framkvæmdum við tvö herbergi á neyðarvistun Stuðla er nú lokið og hægt verður að taka þau herbergi í notkun í dag, samkvæmt skriflegu svari Barna- og Fjölskyldustofu (BOFS) til mbl.is. Eiga þessi tvö herbergi að duga til og mun öll neyðarvistun barna og unglinga því hér eftir fara fram á Stuðlum.

„Miðað við notkun á rýmum í Flatahrauni ættu þessi tvö herbergi að duga fyrir þá skjólstæðinga sem þurfa sérstaklega örugg rými í upphafi vistunar,“ segir í svari BOFS.

Enn standa þó yfir framkvæmdir við neyðarvistun Stuðla, en sú álma gjöreyðilagðist í bruna í október síðastliðnum, þar sem 17 ára barn lést.

Framkvæmdum flýtt til að bregðast við vanda

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, greindi frá því í viðtali við mbl.is þann 2. mars síðastliðinn að ákveðið hefði verið að end­ur­byggja tvö her­bergi með hraði til að bregðast við vand­an­um sem upp væri kom­inn, og ættu þau að standast öryggiskröfur. 

Áttu framkvæmdir að taka fjórar vikur, en Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs BOFS, segir í skriflegu svari að þær hafi tekið lengri tíma en áætlað var í upphafi, enda um mjög sérhæfða starfsemi að ræða og margar öryggiskröfur sem þurfti að uppfylla.

Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri BOFS, sagði í samtali við mbl.is í febrúar, að Flatahraun væri aðeins notað fyr­ir erfiðustu til­fell­in, þegar börn beittu miklu of­beldi eða sýndu aggress­ífa hegðun vegna fíkni­efna­neyslu.

Þau væru vistuð í Flatahrauni í fyrstu en svo flutt yfir í neyðarvistun á Stuðlum. Því má ætla að nýju herbergin séu öruggari en þau sem fyrir voru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert