Ingvar Ágúst Ingvarsson, formaður Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga (SPOEX), hefur verið kjörinn forseti Alþjóðasamtaka psoriasissjúklinga (IFPA) á aðalfundi samtakanna. Mun hann gegna embættinu næstu þrjú ár.
Um er að ræða í fyrsta sinn sem Íslendingur gegnir æðsta embætti innan stærstu regnhlífarsamtaka heimsins fyrir fólk með psoriasis-sjúkdóminn og markar það tímamót bæði fyrir SPOEX og fyrir fólk með psoriasis-sjúkdóminn á heimsvísu.
„Það er mér heiður að fá að leiða IFPA næstu árin og vinna áfram að málefnum þeirra sem lifa með psoriasis og tengdum sjúkdómum. Við eigum mikið verk fyrir höndum og ég hlakka til að takast á við það með stuðningi félaga minna í stjórn IFPA og góðu samstarfi við félagsmenn um allan heim,“ er haft eftir Ingvari úr fréttatilkynningu.
Ingvar var fyrst kjörinn í stjórn IFPA árið 2016 og hefur gegnt embætti varaforseta síðan 2022. Hann hefur verið formaður SPOEX frá því í apríl 2024. Á þeim tíma hefur hann lagt mikla áherslu á vitundarvakningu, fræðslu, réttindi sjúklinga og bætta heilbrigðisþjónustu og lífsgæði þeirra sem lifa með psoriasis-sjúkdóminn.
Kosning hans í áhrifamikið embættið er viðurkenning á því mikilvæga starfi sem hann hefur unnið innan IFPA og gefur honum tækifæri til að beita sér á alþjóðlegum vettvangi fyrir hagsmuni fólks með psoriasis-sjúkdóminn.
Psoriasis er langvinnur bólgusjúkdómur sem getur haft víðtæk áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Talið er að um 2–3% jarðarbúa þjáist af psoriasis-sjúkdómnum og margir þeirra glími einnig við fylgisjúkdóma eins og gigt, hjarta- og æðasjúkdóma, háþrýsting, sykursýki, offitu, bólgusjúkdóma í þörmum, krabbamein og þunglyndi.
Þrátt fyrir að engin lækning sé til staðar núna eru meðferðir sífellt að þróast og alþjóðleg samvinna skiptir þar sköpum. Segir í fréttatilkynningunni að fyrir marga sé baráttan við psoriasis eins og að ganga gegn vindi – ósýnileg fyrir öðrum, en stöðug og krefjandi.
SPOEX hefur verið til staðar í yfir 50 ár og sinnir mikilvægu fræðslu- og hagsmunastarfi. Samtökin bjóða meðal annars upp á ljósameðferðir, upplýsingagjöf, viðburði og ráðgjöf fyrir þá sem glíma við psoriasis-sjúkdóminn eða exem. Þau eru aðili að IFPA, sem samanstendur af samtökum frá yfir 50 löndum og vinnur að sameiginlegum markmiðum um bætt lífsgæði, nýjar meðferðir og sterkari réttindabaráttu.
Með kjöri Ingvars í embætti forseta IFPA eru vonir bundnar við að rödd fólks með psoriasis-sjúkdóminn fái aukið vægi og að Ísland verði í fararbroddi þegar kemur að fræðslu, meðferð og réttindabaráttu.