Réðust á trans konu fyrir utan World Class

Árásin átti sér stað á síðasta ári.
Árásin átti sér stað á síðasta ári. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hópur unglingsdrengja réðst á trans konu fyrir utan líkamsræktarstöð World Class í Laugardalnum í haust. Hlaut konan verulega líkamlega áverka og óttaðist hún líf sitt á meðan árásinni stóð.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Rúv en þar segir að konan hafi verið búsett hér á landi í 10 ár. Hún hafi flúið til Íslands vegna harðræðis sem hún sætti í heimalandi sínu.

Konan kýs að halda nafni sínu og þjóðerni leyndu vegna ótta við árásir í sinn garð. 

Hún segist upplifa aðkast daglega hér á landi og að það hafi ágerst síðastliðin misseri. Konan kom til Íslands í leit að skjóli en segist nú varla geta yfirgefið heimili sitt af ótta við að verða aftur fyrir árás.

Hélt þeir myndu drepa sig

Konan var á æfingu með vini sínum í World Class í Laugum á síðasta ári þegar árásin átti sér stað. Á meðan æfingunni stóð tók hún eftir hópi drengja á aldrinum 15-18 ára sem fylgdust með henni. Upplifði hún mikið óöryggi á meðan æfingunni stóð. 

Þegar hún gekk út úr líkamsræktarstöðinni sá hún drengina standa saman í hóp fyrir utan. Einn þeirra gekk upp að henni og spurði hvort hún væri með sígarettu en stuttu síðar réðust drengirnir á hana. 

Spörkuðu þeir í hana og kýldu, og konan upplifði eins og þeir vildu drepa sig. Hún hlaut töluverða líkamlega áverka, þ.á.m. glóðarauga, brákað nef og brotna tönn. Hún segir þó sálrænu áhrifin vera þau sem sitji eftir og kveðst hún eiga erfitt með að yfirgefa húsnæðið sitt eftir atvikið. 

Árásin náðist á myndbandsupptöku en úr það mikilli fjarlægð að ekki var hægt að bera kennsl á drengina. Þeir flúðu vettvang eftir að starfsmenn World Class hringdu á lögreglu. 

Lögreglan rannsakaði málið sem líkamsárás og hugsanlegan hatursglæp. Málið var fellt niður í mars og telst óupplýst. Konunni fannst lögreglan ekki taka málinu nægilega alvarlega og hefur kært niðurfellingu rannsóknarinnar til ríkissaksóknara.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert