Lögreglunni barst tilkynning um fólk sem kastaði grjóti yfir girðingu við sundlaug á höfuðborgarsvæðinu í dag. Grjótið hafnaði nærri sundlaugargestum ofan í sundlauginni.
Þegar lögreglan kom á vettvang voru meintir grjótkastarar farnir.
Ekki kemur fram hvar téð sundlaug er, en lögreglustöð 2 sinnti útkallinu. Sú lögreglustöð sinnir útköllum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.