Truflaði Neyðarlínuna og fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra

Lögreglan hafði afskipti af manneskju sem truflaði fjarskipti fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra …
Lögreglan hafði afskipti af manneskju sem truflaði fjarskipti fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar. Ljósmynd/Colourbox

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manneskju í dag sem hafði truflandi áhrif á starfsemi fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar. 

Ekki kemur fram í dagbók lögreglunnar hvers eðlis áhrifin voru að fullu, en háttsemi manneskjunnar hafði áhrif á fjarskipti. Ólöglegt er að valda truflunum á fjarskiptum. 

Þá kemur ekki heldur fram hver afskipti lögreglunnar voru eða hvort manneskjan eigi yfir höfði sér ákæru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert