Vorhreinsun Reykjavíkurborgar er í fullum gangi, að því er fram kemur í tilkynningu á heimasíðu borgarinnar.
Vorhreinsunin hófst í mars en helstu göngu- og hjólaleiðir eru í forgangi. Hreinsunin er komin vel af stað og er nú komið að húsagötum.
Forsópun hófst í síðustu viku og götuþvotturinn fer að hefjast. Daginn áður en íbúagötur eru þvegnar sendir Reykjavíkurborg sms til að láta íbúa vita af þvottinum svo að þeim gefist tækifæri til að færa bíla sína.
„Mikilvægt er að bílar séu færðir úr götunni á meðan á götuþvotti stendur. Það flýtir mjög fyrir og skilar betri þrifum þegar bílar eru færðir og ekki lagt á ný fyrr en hreinsun er að fullu lokið. Þetta gildir eingöngu um almenn stæði í götunni og á borgarlandi en ekki stæði innan lóðarmarka íbúðarhúsa og fyrirtækja,“ segir í tilkynningunni.
Sms-skilaboð eru send til íbúa daginn áður til að tryggja að allt gangi sem best fyrir sig en hefðbundnar skiltamerkingar verða enn fremur settar upp til að láta íbúa og gesti borgarinnar vita af götuþvottinum.
Reykjavíkurborg hefur sent skilaboð til fólks síðustu þrjú ár og hefur það að sögn gefið góða raun. „Vonast er til þess að fólk taki einnig vel í skilaboðin nú og liðki til við hreinsunina með því að færa bíla sína en það skilar hreinni og fallegri götum.“
Í þetta sinn verður byrjað í Grafarholti, Úlfarsárdal og á Kjalarnesi.
Vegagerðin sér um rekstur og hreinsun þjóðvega í þéttbýli. Dæmi um þjóðvegi í borginni eru Kringlumýrarbraut, Miklabraut, Hringbraut, Vesturlandsvegur og Reykjanesbraut.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.