Nýskráðir leigusamningar í leiguskrá íbúðarhúsnæðis voru tæplega 14% fleiri á fyrstu þremur mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra.
Fram kemur í frétt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) að alls tóku 4.554 nýir leigusamningar gildi í leiguskrá HMS á fyrsta ársfjórðungi ársins. 2.494 féllu úr gildi og fjölgaði þannig gildum samningum um 2.060 á tímabilinu.
HMS hefur einnig tekið saman upplýsingar um umsvif stórtækra íbúðareigenda á íbúðamarkaði og eiga þeir samkvæmt greiningunni 21% íbúða í Reykjavík og 26% íbúða í Reykjanesbæ.
Bent er á að á höfuðborgarsvæðinu er leiguverð lægra þar sem stórtækir íbúðareigendur eru umsvifameiri.
Stórtækir íbúðareigendur eru skv. skilgreiningu HMS lögaðilar sem eiga fleiri en eina íbúð og einstaklingar sem eiga fimm eða fleiri íbúðir. Skoðað var hvort samband er á milli meðaltals heildarleiguverðs og hlutfalls íbúða sem er í eigu stórtækra íbúðareigenda.
„Neikvæð fylgni er á milli hlutdeildar stórtækra íbúðaeigenda og leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, á meðan engin fylgni er á milli þessara tveggja stærða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins,“ segir í umfjölluninni.
Óhagnaðardrifin leigufélög teljast til lögaðila og er hærra hlutfall leiguíbúða á höfuðborgarsvæðinu á vegum þeirra en í nágrannasveitarfélögum.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.